Hvað nú? hlýtur styrk frá Atvinnumálum kvenna
Þann 16. maí fékk Hvað nú? launastyrk frá Atvinnumálum kvenna en sjóðurinn úthlutar árlega styrkjum til frumkvöðlakvenna eða fyrirtækja í þeirra eigu. Hvað nú? var í hópi 19 verkefna sem fengu styrki samtals að fjárhæð 38.000.000. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra afhenti styrkina við hátíðlega athöfn að Grensásvegi 9.
Skilyrði styrkveitinga eru að verkefnin séu í meirihlutaeigu kvenna, stjórnað af konum og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
Hvað nú? vinnur að því að þróa stafræna og persónulega þjónustu sem styður aðstandendur látinna í gegnum þau verkefni og ákvarðanir sem þarf að takast á við eftir andlát ástvinar. Markmið verkefnisins er að veita bæði fræðslu og hagnýta aðstoð á hlýlegan og aðgengilegan hátt – með virðingu og nærgætni að leiðarljósi.
„Við erum afar þakklát fyrir þennan stuðning sem hjálpar okkur meðal annars að breyta þessu mikilvæga verkefni úr hugmynd í veruleika. Það skiptir máli að fólk fái aðstoð þegar það stendur frammi fyrir flóknum og tilfinningalega krefjandi verkefnum í kjölfar andláts ástvinar,“ segir Erna Niluka, annar stofnenda Hvað nú?
https://atvinnumalkvenna.is/uthlutun-styrkja-til-atvinnumala-kvenna/
Styrkhafar Atvinnumála kvenna árið 2025 ásamt Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ásdísi Guðmundsdóttur, verkefnastjóra Atvinnumála kvenna. Ljósmynd: Robert Z – Mirror rose.