Hvað nú? valið í Snjallræði

Hvað nú? var eitt 11 teyma sem var valið til þátttöku í Snjallræði - 16 vikna vaxtarrými (e. incubator) sem styður við öflug teymi sem brenna fyrir lausnum á áskorunum samtímans og styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Metfjöldi umsókna barst Snjallræði í ár en Snjallræði var fyrst sett á laggirnar árið 2018. Á næstu vikum munu teymin taka þátt í fjölbreyttum vinnustofum, og mentorafundum í Grósku ásamt ýmsum viðburðum sem allir miða að því að hjálpa teymunum að þróa hugmyndir sínar frekar. 

„Það er mikil viðurkenning að vera valin úr stórum hópi umsækjenda sem allir vilja láta gott af sér leiða. Við erum virkilega spenntar fyrir þeirri vinnu sem er framundan og hlökkum til að fá tækifæri til að móta hugmynd okkar frekar, meðal annars með leiðsögn MIT,“ segir Guðrún, annar stofnenda Hvað nú?

Snjallræði er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Akureyri en gaman er að segja frá því að Guðrún er einmitt nemandi við sálfræðideild Háskólans á Akureyri. Vaxtarýmið er rekið í samstarfi við MITdesignX, þar sem sérfræðingar frá MIT deila þekkingu sinni með þátttakendum.

Um MITdesignX: The program is designed to inspire and support innovators to engage complex problems through the power of design and prepare them for impactful careers as entrepreneurs. To fulfill our mission, we integrate technology, science, and human needs in a hands-on learning environment. We foster creative optimism and deploy an experiential curriculum designed for entrepreneurs to develop new skills and deploy robust solutions.

https://www.snjallraedi.is/is/frettir/ellefu-teymi-taka-thatt-i-snjallraedi-i-ar/

Teymin sem valin voru til þátttöku í Snjallræði 2024 ásamt Yscaira Jimenez og Svövu Grönfeldt frá MITdesignX teyminu.

Previous
Previous

Hvað nú? í Topp 10 í Gullegginu