Hvað nú? í Topp 10 í Gullegginu
Hvað nú? teymið er eitt þeirra 10 teyma sem valið var í lokakeppni Gulleggsins í ár. Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi sem hefur verið haldin í upphafi árs af KLAK - Icelandic Startups síðan 2008.
Andláti ástvinar fylgir ekki einungis sorg heldur einnig fjöldi verkefna sem þarfnast úrlausnar og Hvað nú? þróar lausnir sem gera fólki kleift að takast á við þessi verkefni af öryggi, með stuðningi og yfirsýn.
„Okkur fannst spennandi að byrja árið á því að skrá Hvað nú? í Gulleggið og halda áfram að þróa verkefnið með þeim frábæra stuðningi sem frumkvöðlum stendur til boða á Íslandi. Við erum mjög þakklátar fyrir að hafa komist í hóp tíu efstu teyma en í því felst mikil viðurkenning og það sést að dómnefndin metur mikilvægi verkefnis sem snýst um að styðja fólk í sorg. Við vitum hversu yfirþyrmandi verkefnin geta verið þegar ástvinur fellur frá og því skiptir miklu að fá leiðsögn og stuðning á réttum tíma,“ segir Erna Niluka, annar stofnenda Hvað nú?
Gulleggið hefur verið stökkpallur fyrir fjölmörg íslensk fyrirtæki sem dæmi Controlant, Meniga, PayAnalytics, Genki, Taktikal og fjölmörg önnur. Til gamans má geta að þetta er í annað sinn sem Guðrún tekur þátt í Gullegginu en hún tók síðast þátt árið 2011, þá með hugmyndina Puzzled by Iceland.
https://vb.is/frettir/teymin-tiu-sem-keppa-um-gulleggid-i-ar/
Teymin sem valin voru til þátttöku í keppninni um Gulleggið 2025