Hvað nú? lenti í 2. sæti í Gullegginu

Hvað nú? lenti í 2. sæti í lokakeppni Gulleggsins sem haldin var í Grósku og hlutu að launum 1.000.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum. Auk þess var teymið valið af KPMG til að hljóta sérstök aukaverðlaun sem voru 20 klukkustunda í ráðgjöf.

Gaman er að segja frá því að þetta er í annað sinn sem Guðrún lendir í öðru sæti í Gullegginu en hún keppti síðast fyrir 14 árum, þá með annarri kærri vinkonu sinni og hugmynd þeirra Puzzled by Iceland. Samkvæmt bestu vitund teymisins er þetta í fyrsta sinn sem einn og sami þátttakandi lendir aftur í vinningssæti í keppninni um Gulleggið.

„Ég er ekki frá því að þetta hafi verið enn skemmtilegra núna en þegar ég tók þátt síðast þótt keppnin sé nú með allt öðru sniði en árið 2011. Tækifæri líkt og Gulleggið eru okkur frumkvöðlum afar mikilvæg, bæði til að koma hugmyndum okkar á framfæri en einnig til að fá leiðsögn frá reynslumiklu fólki. Við erum mjög stoltar af árangrinum en fyrst og fremst erum við þakklátar fyrir viðurkenninguna og áhugann sem við fundum fyrir Hvað nú? í keppninni,“ segir Guðrún, annar stofnenda Hvað nú?

Hvað Nú Gullegg kynning

Teymið hélt 3 mínútna kynningu fyrir fullum sal af fólki í hátíðarsal Grósku og svaraði að því loknu spurningum panels. Í panel sátu Ragnheiður H. Magnúsdóttir, englafjárfestir, stofnandi Nordic Ignite og framkvæmdastjóri Maggar ásamt Eyþóri Mána Steinarssyni, stofnandi Hopp og mentor í KLAK VMS en hann hreppti annað sætið í Gullegginu árið 2018 með hugmyndina Greiði.

Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri samskipta og menningar hjá Landsbankanum, afhenti verðlaun fyrir 2. sætið í keppninni.

Teymin 10 sem unnu sér þátttökurétt í lokakeppni Gulleggsins árið 2025.

Previous
Previous

Bítið spjallar við Hvað nú?

Next
Next

Hvað nú? í Topp 10 í Gullegginu