Við erum hjörtun í Hvað nú?
Hvað nú? er hugarfóstur vinkvennanna Ernu Niluku Njálsdóttur og Guðrúnar Heimisdóttur sem stofnuðu fyrirtækið á vormánuðum 2025. Þær hafa báðar misst náinn ástvin og þekkja því af eigin raun hvað verkefnin geta verið mörg og ferlið flókið. Meðstofnandi er Bergþóra Ingþórsdóttir sem bættist í hópinn á vormánuðum 2026.
Í sameiningu búa Erna, Guðrún og Bergþóra yfir víðtækri innsýn í heilbrigðisþjónustu og fyrirtækjarekstur ásamt dýrmætri persónulegri reynslu af missi og sorginni sem honum fylgir. Þær vita af eigin raun hvers konar stuðningur skiptir máli - bæði sem fagaðilar og sem aðstandendur.
Með Hvað nú? eru þær að þróa mikilvæga lausn sem mætir fólki af virðingu, nærgætni og fagmennsku þegar mest á reynir.
Erna Niluka Njálsdóttir
Erna Niluka Njálsdóttir er hjúkrunarfræðingur með B.Sc. í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Íslands og býr yfir áratuga reynslu af störfum innan heilbrigðiskerfisins, m.a. á gjörgæsludeild Landspítala, COVID-göngudeild spítalans og hjá Klíníkinni. Hún starfaði einnig um árabil á Södersjukhuset í Stokkhólmi.
Með sérhæfingu sinni í umönnun á krefjandi og viðkvæmum stundum hefur Erna dýrmæta innsýn í þörfina fyrir persónulegan og faglegan stuðning. Hjá Hvað nú? leiðir Erna stefnumótun og uppbyggingu fyrirtækisins og vinnur náið með samstarfsaðilum, stofnunum og þjónustuaðilum að þróun lausna sem styðja einstaklinga og fjölskyldur á krefjandi tímum.
erna@hvadnu.is
s: 616-7291
Guðrún Heimisdóttir
Guðrún Heimisdóttir er með B.Sc. í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri með 30 einingar í “Death, dying and bereavement” frá The Open University í Bretlandi. Lokaverkefni hennar var unnið í samstarfi við Líknardeild Landspítala og fjallaði um umræðuna um dauðann og að vera deyjandi.
Auk þess er Guðrún með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, MA í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Hjá Hvað nú? kemur Guðrún að stefnumótun, rekstri og uppbyggingu fyrirtækisins.
gudrun@hvadnu.is
s: 699-1663
Bergþóra Ingþórsdóttir
Bergþóra Ingþórsdóttir er félagsráðgjafi að mennt og hefur starfað innan heilbrigðiskerfisins um árabil, m.a. á krabbameinsdeild, gjörgæslu og líknardeild Landspítala. Í störfum sínum hefur hún stutt sjúklinga og aðstandendur á krefjandi og viðkvæmum tímum og öðlast dýrmæta innsýn í þær áskoranir sem fjölskyldur standa frammi fyrir við alvarleg veikindi, lífslok og missi.
Lokaverkefni hennar fjallaði um reynslu fólks af skyndilegum ástvinamissi. Auk félagsráðgjafamenntunar hefur hún lagt stund á nám í sálgæslu við Endurmenntun Háskóla Íslands. Hjá Hvað nú? leiðir Bergþóra þróun þjónustu og efnis fyrir einstaklinga og aðstandendur.
bergthora@hvadnu.is
s: 857-6262