Við erum hjörtun í Hvað nú?

Hvað nú? er hugarfóstur vinkvennanna Ernu Niluku Njálsdóttur og Guðrúnar Heimisdóttur. Þær hafa báðar misst náinn ástvin og þekkja því af eigin raun hvað verkefnin geta verið mörg og ferlið flókið.

Í sameiningu búa Erna og Guðrún yfir víðtækri innsýn í heilbrigðisþjónustu og fyrirtækjarekstur ásamt dýrmætri persónulegri reynslu af missi og sorginni sem honum fylgir. Þær vita af eigin raun hvers konar stuðningur skiptir máli - bæði sem fagaðilar og sem aðstandendur.

Með Hvað nú? eru þær að þróa mikilvæga lausn sem mætir fólki af virðingu, nærgætni og fagmennsku þegar mest á reynir.

Erna Niluka Njálsdóttir

Erna Niluka Njálsdóttir, er með B.Sc. í hjúkrunarfræðum frá Háskóla Íslands og býr yfir áratuga reynslu af störfum við hjúkrun á Landspítala, m.a. á gjörgæsludeild, sem og við Klíníkina.

Erna bjó um tíma í Svíþjóð þar sem hún starfaði á Södersjukhuset í Stokkhólmi.

Með sérhæfingu sinni í umönnun á krefjandi og viðkvæmum stundum hefur Erna dýrmæta innsýn í þörfina fyrir persónulegan og faglegan stuðning.

erna@hvadnu.is
s: 616-7291

Guðrún Heimisdóttir

Guðrún Heimisdóttir er með B.Sc. í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri með 30 einingar úr “Death, dying and bereavement” frá The Open University í Bretlandi. Guðrún vann lokaverkefni sitt í samstarfi við Líknardeild Landspítala sem fjallaði um umræðuna um dauðann og að vera deyjandi.

Auk þess er Guðrún með B.Sc. í viðskiptafræðum frá Háskólanum í Reykjavík, MA í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands.

Guðrún bjó um tíma á Írlandi, rak eigið fyrirtæki í yfir áratug, stýrði eigin sjónvarpsþáttum og starfaði á samskiptasviði Arion banka svo að fátt eitt sé nefnt.

gudrun@hvadnu.is
s: 699-1663