Reynslumikill tæknistjóri bætist við teymi Hvað nú?

Hvað nú? hefur fengið Markús M. Þorgeirsson til liðs við fyrirtækið sem meðstofnanda og tæknistjóra (CTO). Með komu hans styrkist eigendahópur fyrirtækisins enn frekar á sama tíma og unnið er að áframhaldandi þróun Fyrirhyggju.

Markús er tölvunarfræðingur að mennt og hefur starfað við hugbúnaðarþróun í rúm tuttugu ár. Á þeim tíma hefur hann leitt þróunarteymi, byggt upp stafrænar lausnir og mótað tæknilega stefnu umfangsmikilla verkefna þar sem öryggi, persónuvernd og notendaupplifun skipta sköpum. Reynsla hans mun nýtast vel við áframhaldandi þróun Fyrirhyggju og tæknilega uppbyggingu fyrirtækisins.

Sem tæknistjóri mun Markús leiða tæknilega stefnu Hvað nú? og móta tæknilegan grunn fyrirtækisins til framtíðar. Hann mun stýra þróun Fyrirhyggju og annarra tæknilausna fyrirtækisins. Við þróun Fyrirhyggju verður áhersla lögð á að þróa örugga, notendavæna og trausta lausn sem styður einstaklinga og aðstandendur þegar mest á reynir.

„Þegar Erna og Guðrún kynntu verkefnið fyrir mér sá ég strax að hér var ekki bara á ferðinni frábær hugmynd, heldur lausn á raunverulegu og óumflýjanlegu vandamáli. Við lendum öll í því á einhverjum tímapunkti að kveðja, eða þurfa að ganga frá málum fyrir ástvini á tímum þar sem orkan og yfirsýnin er einfaldlega ekki til staðar. Að fá tækifæri til að tvinna saman örugga tækni og manneskjulega þjónustu til að létta þessa byrði af fólki er verkefni sem mig langaði innilega að taka þátt í að byggja upp, enda um að ræða verkefni sem allir koma til með að standa frammi fyrir á einhverjum tímapunkti í lífinu. Ekki dregur úr hve spennandi þetta er að fá að vinna þetta með svona öflugu og drífandi teymi,“ segir Markús.


Frá upphafi Hvað nú? hefur markmiðið verið að þróa lausnir sem einfalda fólki þau fjölmörgu verkefni sem fylgja andláti ástvinar. Sú vinna heldur nú áfram með þróun Fyrirhyggju sem hlaut nýverið Sprota-styrk frá Tækniþróunarsjóði. Samhliða þessari uppbyggingu hefur fyrirtækið markvisst styrkt eigendahóp sinn með það að markmiði að sameina ólíka sérþekkingu sem nýtist við þróun Fyrirhyggju og uppbyggingu fyrirtækisins. Með komu Markúsar inn í hópinn bætist við mikilvæg reynsla af hugbúnaðarþróun og uppbyggingu stafrænna lausna.

„Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá Markús til liðs við Hvað nú? Víðtæk reynsla hans af hugbúnaðarþróun og uppbyggingu öruggra, stafrænna lausna verður dýrmæt þegar við höldum áfram að þróa Fyrirhyggju og byggja fyrirtækið upp til framtíðar,“ segir Erna Niluka Njálsdóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Hvað nú? 


Markús tekur sæti í eigendahópi Hvað nú? ásamt Ernu Niluku Njálsdóttur, Guðrúnu Heimisdóttur og Bergþóru Ingþórsdóttur. Saman vinna þau að áframhaldandi þróun Fyrirhyggju og annarra lausna á sviði dánarumsýslu, sem hafa það að markmiði að auðvelda fólki að undirbúa framtíðina og styðja aðstandendur við andlát ástvinar.

Markús er tölvunarfræðingur að mennt og býr yfir áratuga reynslu af hugbúnaðarþróun, bæði innanlands og utan. Auk þess að gegna hlutverki tæknistjóra tekur Markús sæti í eigendahópi Hvað nú? sem meðstofnandi.

Með komu Markúsar í hópinn bætist við mikilvæg reynsla af hugbúnaðarþróun og uppbyggingu stafrænna lausna sem nýtist við þróun Fyrirhyggju og uppbyggingu fyrirtækisins.

Next
Next

Rætt um Fyrirhyggju í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni