Rætt um Fyrirhyggju í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni
Guðrún Heimisdóttir, annar stofnenda Hvað nú?, var gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í vikunni þar sem hún ræddi tilurð verkefnisins og þá reynslu sem leiddi til þess að hugmyndin varð að veruleika.
Í viðtalinu ræddu þeir Kristófer og Auðunn við hana meðal annars um þær fjölmörgu ákvarðanir, verkefni og upplýsingaóreiðu sem aðstandendur standa frammi fyrir í tengslum við andlát ástvinar. Rætt var um hvernig Fyrirhyggja er þróuð með það að markmiði að einfalda aðgengi að mikilvægum upplýsingum, draga úr óvissu og létta álagi af aðstandendum á erfiðum tímum.
Fyrirhyggja er ný stafræn lausn á vegum Hvað nú? sem miðar að því að hjálpa fólki að undirbúa mikilvægar upplýsingar og óskir fyrir framtíðina og auðvelda þannig aðstandendum að takast á við hagnýt verkefni í kjölfar andláts.
Við erum þakklát fyrir tækifærið til að vekja athygli á þessum mikilvægu málum og hlökkum til að halda áfram að þróa lausnir sem styðja fólk þegar það þarf mest á þeim að halda.