Fyrirhyggja


Stafræn lausn sem hjálpar þér að halda utan um mikilvægar upplýsingar, réttindi og óskir svo aðstandendur þurfi ekki að byrja leitina frá grunni þegar á reynir.

Algengar spurningar

  • Fyrirhyggja er stafræn lausn sem gerir fólki kleift að halda utan um mikilvægar upplýsingar, réttindi og persónulegar óskir á einum stað og miðla þeim á öruggan hátt til valinna aðstandenda eftir andlát. Markmiðið er að draga úr álagi, óvissu og flækjustigi sem oft fylgir dánarumsýslu.

  • Fyrirhyggja er þróuð af Hvað nú?, íslensku nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að því að einfalda dánarumsýslu og styðja við aðstandendur í kjölfar andláts. Að baki verkefninu stendur þverfaglegt teymi með reynslu úr heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, sálfræði, rekstri og hugbúnaðarþróun. Verkefnið hefur hlotið styrki frá Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka og Tækniþróunarsjóði Rannís auk þess að hafa fengið viðurkenningar fyrir nýsköpun og samfélagslegt gildi sitt.

  • Þegar einstaklingur deyr standa aðstandendur oft frammi fyrir fjölmörgum verkefnum sem tengjast meðal annars tryggingum, lífeyrissjóðum, stéttarfélögum, bönkum, erfðamálum og öðrum réttindum. Upplýsingarnar eru dreifðar á marga staði og erfitt getur verið að fá yfirsýn. Fyrirhyggja er þróuð til að einfalda þetta ferli.

  • Í dag er engin íslensk lausn sem sameinar á einum stað skráningu upplýsinga, persónulegar óskir, leiðsögn, fræðslu og aðgangsstýrða miðlun til aðstandenda eftir andlát. Fyrirhyggja byggir á heildrænni nálgun þar sem bæði einstaklingurinn og aðstandendur njóta stuðnings.

  • Notendur geta meðal annars skráð upplýsingar um lífeyrissjóði, stéttarfélög, tryggingar, tengiliði, mikilvægar skjalaheimildir og persónulegar óskir. Markmiðið er að aðstandendur þurfi ekki að byrja leitina frá grunni þegar andlát verður.

  • Nei. Fyrirhyggja kemur ekki í stað erfðaskrár heldur getur hjálpað einstaklingum að halda utan um upplýsingar um erfðaskrá og önnur mikilvæg skjöl og leiðbeint aðstandendum um hvar þau eru geymd og hvernig nálgast megi þau.

  • Nei. Andlát og alvarleg veikindi geta orðið á öllum aldri. Fyrirhyggja er ætluð öllum sem vilja auðvelda sínum nánustu að takast á við þau verkefni sem fylgja andláti og tryggja að mikilvægar upplýsingar glatist ekki.

  • Fyrirtæki geta boðið starfsfólki aðgang að Fyrirhyggju sem hluta af sínum starfsmannakjörum eða velferðarúrræðum. Markmiðið er að styðja starfsfólk við skipulag og undirbúning og draga úr álagi þegar áföll dynja yfir.

  • Já, til lengri tíma er markmiðið að skoða samstarf við fjölbreytta hagsmunaaðila, þar á meðal stéttarfélög, lífeyrissjóði og aðra þjónustuaðila sem koma að réttindum og stuðningi við einstaklinga og fjölskyldur, enda er Fyrirhyggju ætlað að auðvelda fólki að finna og nýta réttindi sín og koma í veg fyrir að upplýsingar glatist.

  • Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á öryggi og persónuvernd. Lausnin verður þróuð samkvæmt meginreglum um öryggi og persónuvernd frá hönnunarstigi (security-by-design og privacy-by-design) og með skýrum aðgangsstýringum.

  • Notandinn sjálfur ákveður hverjir fá aðgang og að hvaða upplýsingum. Aðgangsstýring er einn af lykilþáttum lausnarinnar.

  • Nei. Markmið lausnarinnar er að vernda og miðla upplýsingum samkvæmt vilja notandans. Öll vinnsla persónuupplýsinga verður í samræmi við gildandi persónuverndarlög.

  • Þú getur skráð þig á póstlista Hvað nú? á hvadnu.is. Við munum reglulega segja frá framvindu verkefnisins, samstarfi, notendaprófunum og því hvenær Fyrirhyggja verður tilbúið til notkunar.

  • Áhugasamir geta skráð sig á póstlista verkefnisins. Þeir sem eru á listanum verða meðal þeirra fyrstu sem fá upplýsingar um opnun, prófanir og nýja eiginleika.

  • Já. Við tökum nú þegar við skráningum frá einstaklingum sem vilja fá upplýsingar um verkefnið og fá boð þegar Fyrirhyggja verður tilbúið.

  • Já. Við munum á næstu misserum leita eftir einstaklingum sem vilja taka þátt í að prófa lausnina og veita endurgjöf. Áhugasamir geta haft samband við okkur eða skráð sig á póstlistann.

  • Já, við tökum mjög gjarnan á móti ábendingum og reynslusögum frá fólki sem hefur gengið í gegnum andlát ástvinar. Verkefnið byggir á raunverulegum þörfum notenda og slík endurgjöf er afar verðmæt.

  • Já. Hvað nú? vinnur einnig að lausnum fyrir vinnustaði sem vilja bregðast faglega við þegar starfsmaður missir náinn ástvin eða verður fyrir öðrum alvarlegum áföllum. Fyrirtæki sem hafa áhuga eru hvött til að hafa samband.

  • Já. Við tökum fagnandi á móti samtali við fyrirtæki, mannauðsdeildir, tryggingafélög, stéttarfélög, lífeyrissjóði, fagfólk og félagasamtök sem vilja kynna sér verkefnið og ræða mögulegt samstarf. Markmið okkar er að þróa lausn sem byggir á raunverulegum þörfum notenda og þeirra aðila sem veita fólki stuðning, réttindi eða þjónustu þegar á reynir.

  • Fyrirtækið er nú í þróunarfasa. Þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með framvindu eða ræða mögulegt samstarf eða fjárfestingu geta haft samband við teymið.

  • Einfaldasta leiðin er að fylgjast með verkefninu, skrá sig á póstlista og segja öðrum frá. Einnig er velkomið að deila reynslu, ábendingum og hugmyndum sem geta hjálpað okkur að þróa betri lausn.

  • Nú er hafin þróun á lausninni með stuðningi Tækniþróunarsjóðs. Næstu mánuðir fara í notendarannsóknir, hönnun og tæknilega þróun. Nákvæm opnunardagsetning liggur ekki fyrir en áhugasamir geta skráð sig hér til að fá upplýsingar um framvindu verkefnisins.

  • Þótt lausnin sé enn í þróun hvetjum við fólk til að hefja samtalið við sína nánustu um mikilvægar upplýsingar, réttindi og óskir. Markmið Fyrirhyggju er einmitt að auðvelda slík samtöl og gera upplýsingarnar aðgengilegri þegar þeirra er þörf. Þetta passar líka mjög vel við boðskap Hvað nú? um að opna umræðuna um dauðann og undirbúning fyrir hann.