Bakhjarlar Hvað nú?
Haustið 2024 var Hvað nú? valið til þátttöku í Snjallræði. Í byrjun árs 2025 lenti teymið í 2. sæti í Gullegginu og var auk þess valið af KPMG sem handhafi sérstakra aukaverðlauna frá KPMG. Launastyrkur frá Atvinnumálum kvenna í maí 2025 og styrkur úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka í nóvember sama ár endurspeglar enn fremur traust til teymisins og hugmyndarinnar. Það var síðan vorið 2026 sem teymið hlaut Sprotastyrk frá Tækniþróunarsjóði.