Bergþóra Ingþórsdóttir gengur til liðs við Hvað nú? sem meðstofnandi og þjónustustjóri

Hvað nú? hefur fengið Bergþóru Ingþórsdóttur til liðs við fyrirtækið sem meðstofnanda og þjónustustjóra. Með komu hennar styrkir fyrirtækið enn frekar faglegan grunn sinn og getu til að þróa þjónustu sem styður einstaklinga og fjölskyldur þegar veikindi, andlát og missir verða hluti af lífinu.

Bergþóra er félagsráðgjafi að mennt og hefur starfað innan heilbrigðiskerfisins, m.a. á krabbameinsdeildum, gjörgæslu og líknardeild Landspítala. Hún býr því yfir víðtækri reynslu af stuðningi við sjúklinga og aðstandendur á viðkvæmum tímum. Samhliða þátttöku sinni í uppbyggingu Hvað nú? útskrifaðist hún nýverið úr námi í sálgæslu frá Endurmenntun Háskóla Íslands og bætir þar með enn frekar við þá þekkingu og reynslu sem hún kemur með inn í verkefnið.

Áhugi hennar á málefnum sorgar, missis og stuðnings við aðstandendur byggir þó ekki eingöngu á menntun og starfsreynslu. Persónuleg reynsla hennar af missi vakti hjá henni áhuga á því hvernig samfélagið getur betur stutt fólk þegar það stendur frammi fyrir veikindum, andláti og sorg. Hún hefur áður rætt opinberlega um mikilvægi þess að aðstandendur fái skýrar upplýsingar, leiðsögn og aðstoð við að halda utan um þau fjölmörgu verkefni sem geta fylgt alvarlegum veikindum og andláti ástvinar. Sú sýn fellur vel að markmiðum Hvað nú? um að gera mikilvægar upplýsingar og stuðning aðgengilegri fyrir einstaklinga og fjölskyldur.

„Það sem heillaði mig við Hvað nú? er að verkefnið byggir á raunverulegri þörf. Í gegnum bæði störf mín og eigin reynslu hef ég séð hversu erfitt það getur verið að halda utan um upplýsingar, réttindi og verkefni þegar fólk stendur frammi fyrir miklu álagi. Ég hlakka til að taka þátt í að byggja upp þjónustu sem getur veitt fólki skýrari leiðsögn og stuðning á þessum tímum,“ segir Bergþóra.

Sem þjónustustjóri mun Bergþóra gegna lykilhlutverki í uppbyggingu þjónustu Hvað nú? Hlutverk hennar verður m.a. að tryggja að reynsla og þarfir notenda séu ávallt í forgrunni við þróun þjónustunnar. Hún mun leiða rýnihópa, safna endurgjöf frá notendum og samstarfsaðilum og koma að kortlagningu verkferla, þróun efnis og leiðsagnar fyrir notendur. Markmiðið er að byggja þjónustu sem tekur mið af raunverulegum þörfum einstaklinga og fjölskyldna sem standa frammi fyrir veikindum, andláti eða missi.

Ráðning Bergþóru markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Hvað nú?, sem vinnur að því að gera upplýsingar, leiðsögn og stuðning aðgengilegri fyrir einstaklinga og fjölskyldur þegar á reynir.

„Við erum afar ánægðar að fá Bergþóru til liðs við okkur. Hún kemur með einstaka blöndu af faglegri þekkingu, reynslu af vinnu með sjúklingum og aðstandendum og djúpan skilning á þeim áskorunum sem fólk stendur frammi fyrir þegar veikindi og missir verða hluti af lífinu. Hennar framlag mun skipta miklu máli í áframhaldandi uppbyggingu Hvað nú?,“ segir Erna Niluka Njálsdóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Hvað nú?

Bergþóra hefur gengið til liðs við Hvað nú? sem meðstofnandi og þjónustustjóri. Bergþóra er félagsráðgjafi að mennt og lauk nýverið námi í sálgæslu frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Bergþóra býr yfir dýrmætri reynslu af því að vinna með sjúklingum og aðstandendum þeirra m.a. í störfum sínum sem félagsráðgjafi á ýmsum deildum Landspítala.

Next
Next

Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir Hvað nú?