Hvað nú? hlýtur Sprota styrk frá Tækniþróunarsjóði fyrir þróun Fyrirhyggju

Í byrjun júní veitti Tækniþróunarsjóður Hvað nú? Sprota styrk til áframhaldandi þróunar á Fyrirhyggju, nýrri stafrænni lausn sem hefur það markmið að auðvelda einstaklingum að halda utan um mikilvægar upplýsingar, réttindi og persónulegar óskir og styðja þannig við aðstandendur þegar á reynir.

Fyrirhyggja er stafræn lausn sem gerir einstaklingum kleift að halda utan um mikilvægar upplýsingar, réttindi og persónulegar óskir á einum stað og miðla þeim með öruggum hætti til valinna aðstandenda eftir andlát. Markmiðið er að draga úr álagi og óvissu og auðvelda aðstandendum að fá yfirsýn yfir þau réttindi, upplýsingar og óskir sem geta skipt sköpum þegar þeir standa frammi fyrir missi ástvinar.

Á Íslandi deyja árlega þúsundir einstaklinga og í kjölfar hvers andláts fylgja fjölmörg verkefni sem tengjast m.a. tryggingum, lífeyrissjóðum, stéttarfélögum, bönkum, erfðamálum og ýmsum réttindum. Fyrirhyggja er þróuð til að auðvelda einstaklingum að undirbúa þessi mál í lifanda lífi og veita aðstandendum skýra leiðsögn og yfirsýn þegar þeirra er þörf.

Með stuðningi Tækniþróunarsjóðs verður unnið að áframhaldandi hönnun, notendarannsóknum, tæknilegri þróun og prófunum á Fyrirhyggju í samstarfi við notendur og lykilhagsmunaaðila. Markmiðið er að þróa örugga, aðgengilega og notendamiðaða lausn sem svarar raunverulegum þörfum einstaklinga, fjölskyldna og þeirra aðila sem koma að málefnum tengdum andláti.

Alls bárust Tækniþróunarsjóði 373 umsóknir í þessari úthlutun og ákvað stjórn sjóðsins að ganga til samninga við 49 verkefni. Styrkurinn er því mikilvæg viðurkenning á nýsköpunargildi Fyrirhyggju og þeirri samfélagslegu þörf sem henni er ætlað að mæta. Styrkurinn gerir teyminu kleift að hraða þróun Fyrirhyggju og halda áfram uppbyggingu lausnarinnar í samstarfi við notendur og lykilaðila.

„Þegar einstaklingur fellur frá þurfa aðstandendur oft að leita upplýsinga á fjölmörgum stöðum, hafa samband við ólíka þjónustuaðila og takast á við flókin verkefni á sama tíma og þeir glíma við sorg, missi og mikla óvissu. Við teljum að hægt sé að gera þetta ferli bæði einfaldara og mannlegra og það er einmitt það sem Fyrirhyggja er þróuð til að gera. Það á enginn að þurfa að verða sérfræðingur í dánarumsýslu á sama tíma og hann er að syrgja ástvin,“ segir Guðrún Heimisdóttir, annar stofnenda og fjármálastjóri Hvað nú?

Áhugasamir geta kynnt sér Fyrirhyggju nánar, skráð sig á póstlista okkar og fylgst með framvindu Fyrirhyggju á upplýsingasíðu hennar hér: 

https://www.hvadnu.is/fyrirhyggja


https://island.is/s/rannis/frett/fulltruar-49-verkefna-fa-styrk-ad-andvirdi-803-milljona-krona-i-voruthlutun-taeknithrounarsjods

Next
Next

Bergþóra Ingþórsdóttir gengur til liðs við Hvað nú? sem meðstofnandi og þjónustustjóri